Margt verður í boði fyrir yngri kynslóðina í sumar en íþrótta- og frístundafélög í Ölfusi bjóða líkt og venjulega upp á ýmiss konar námskeið. Auk hefðbundinna íþróttanámskeiða verður einnig boðið upp á menningar- og listatengd námskeið að þessu sinni.

Sumarfrístund fyrir börn í 1.-4. bekk verður opin frá 8-16 alla virka daga frá 10. júní-9. júlí. Vetrarfrístund hefst svo að nýju þann 11. ágúst.

Á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss segir að ,,reynslan hafi sýnt að foreldrar sem taka virkan þátt í lífi barna sinna eru besta forvörnin. Samvera foreldra og barna er afar mikilvæg og gefast mörg tækifæri til slíkra stunda á sumrin. Mikilvægt er að allir taki höndum saman og hugi að öryggismálum í sumarleikjum. Trampolín eru nokkuð algeng í görðum og er brýnt að foreldrar ítreki fyrir börnum að sýna aðgát og að öryggisnet séu uppsett. Munum líka eftir hjálmunum í sumar, hvort sem við erum á hjóli, hestbaki, línuskautum eða brettum.“

Að því sögðu má nefna að Hopp rafhjól eru nú komin til Þorlákshafnar. Samkvæmt reglum Hopp er mælst til þess að notendur hjólanna hafi náð 18 ára aldri og noti hjálma (sjá reglur)

Allar frekari upplýsingar um sumarnámskeiðin má finna á viðburðadagatali Ölfuss sem og hjá námskeiðshöldurum. Fleiri námskeið eru fyrirhuguð í sumar og verða þau auglýst síðar á heimasíðu Ölfuss.

Hér má sjá kynningarbæklinginn um þau sumarnámskeið sem í boði eru: