Drekanum lokað tímabundið vegna óhappa

Sveitarfélagið Ölfus hefur sent frá sér tilkynningu um að annarri nýju rennibrautinni við sundlaugina, svokölluðum Dreka hafi verið lokað tímabundið. Er það gert vegna fjölda óhappa sem orðið hafa á gestum síðustu daga en margir hafa hlotið skrámur og ýmis meiðsl við að renna sér niður brautina. Unnið er að rannsókn á því hvað veldur og verður Drekinn ekki opnaður á ný fyrr en öryggi gesta er tryggt.