Bæjarráð Sveitarfélagsins Ölfuss hefur samþykkt að frá og með næstu mánaðamótum verði leikskólar sveitarfélagsins gjaldfrjálsir.

Ákvörðunin felur í sér að öllum börnum býðst allt að 36 klukkustunda leikskóladvöl á viku án gjaldtöku, óháð tekjum foreldra. Ákvörðunin er tekin á grundvelli sterkrar fjárhagsstöðu og jákvæðrar rekstrarþróunar undanfarin ár.

Samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 1.346 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Íbúar í sveitarfélaginu eru nú rúmlega 3.000 og hefur þeim fjölgað 4% til 6,5% ári seinustu ár.

Með ákvörðuninni hyggst sveitarfélagið styðja við barnafjölskyldur og láta góðan rekstrarárangur skila sér í aukinni þjónustu við íbúa.

Elliði Vignisson:
„Sveitarfélagið Ölfus ætlar að vera í fararbroddi í þjónustu við ungt fólk og börn þeirra. Þessi kynslóð stendur í dag frammi fyrir áður óþekktum aðgangshindrunum á húsnæðismarkaði, meiri skuldsetningu og þyngri greiðslubyrði. Verðbólga og vextir eru að hækka sem þyngir stöðu þeirra enn frekar í samanburði við þá sem eru eldri. Þau eru oftar í leiguhúsnæði og með hærri lán miðað við tekjur. Sveitarfélagið Ölfus er vel rekið og hefur burði til að þess að styðja við bakið á þeim. Við höfum unnið einbeitt að því að draga úr lóðakostnaði, bjóða upp á heimagreiðslur, bæta íþróttaaðstöðu, fjölga leikskólum, hækka tómstundastyrki og fleira. Nú tökum við næsta skref og bjóðum upp á gjaldfrjálsan leikskóla. Hér velferðin sótt á grundvelli verðmætasköpunar og góður rekstrarárangur á að skila sér beint til íbúa í formi lægri gjalda, aukinnar þjónustu og bættra lífsgæða“