Eldri borgarar þurfa sitt eigið félagsheimili

Á undanförnum árum hefur þjónusta við eldri borgara í Ölfusi tekið mikilvægum framförum. Ný dagvist sem var tekin í notkun á þessu kjörtímabilil hefur bætt þjónustu mikið, sérhönnuðum íbúðum hefur fjölgað og unnið er að frekari uppbyggingu, þar á meðal hjúkrunarheimili. Þetta eru mikilvæg skref, en þau duga ekki ein og sér.

Í Ölfusi eru nú yfir 300 eldri borgarar og þeim fer fjölgandi. Þörfin fyrir fjölbreytta þjónustu og aðstöðu mun því aukast á næstu árum. Á sama tíma er ljóst að staða þeirra sem þurfa mestu þjónustuna er erfið og kallar á áframhaldandi uppbyggingu. Samkvæmt mati KPMG þarf að fjölga hjúkrunarrýmum á Suðurlandi um hátt í 200 umfram núverandi framkvæmdaáætlun á næstu 10 árum. Það verkefni er brýnt en það má ekki útiloka að við sinnum líka þeim sem eru í fullu fjöri.

Umræðan um eldri borgara festist of oft í veikindum og umönnun. Þó það séu raunveruleg og brýn mál, þá segja þau ekki alla söguna. Stór hópur eldri borgara er virkur, vill rækta félagslíf, læra nýja hluti og njóta samveru. Til þess þarf aðstöðu sem styður við slíkt starf.

Félag eldri borgara í Þorlákshöfn er öflugt og gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi margra. Starfsemin hefur þó búið við takmarkað húsnæðisrými innan einnar af stofnunum sveitarfélagsins, Níunnar. Opnunartími, takmarkað húsnæði og fjölbreytt notkun þess hamlar frekari uppbyggingu. Of oft þarf líflegt spjall, öflug sköpun og vilji til samveru að víkja vegna einhverskonar takmörkunar á aðgengi að húsnæði. Þar liggja augljós tækifæri til að gera betur.

Veigamikill þáttur í stefnu okkar fyrir næsta kjörtímabil sem verður kynnt á næstunni er að tryggja félagi eldriborgara eigið félagsheimili, rými þar sem hægt er að efla félagsstarf, auka þátttöku og styrkja tengsl. Staður þar sem Félag eldri borgara fer með lyklavöldin og hagar sinni starfsemi út frá hagsmunum eldriborgara og engu öðru. Slík aðstaða er ekki lúxus, heldur mikilvæg fjárfesting í lífsgæðum, heilsu og samfélagi.

Með því að byggja upp þjónustu og félagsaðstöðu í sérstök félagsheimili eldri borgara bætum við möguleika til félagslegrar þátttöku aldraðra og gerum gott samfélag enn betra, fyrir alla aldurshópa.

Gerum gott betra

Grétar Ingi Erlendsson, skipar 1. sæti á D lista og formaður Bæjarráðs

Bettý Grímsdóttir, skipar 7. sæti á D lista og formaður Öldungaráðs

Ásta Júlía Jónsdóttir, skipar 14. sæti á D lista og fulltrúi í Öldungaráði

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir