Ársreikningur Ölfuss 2025 samþykktur samhljóða

Ársreikningar Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2025 voru teknir til síðari umræðu og lagðir fyrir fund bæjarstjórnar þann 30. apríl síðastliðinn.

Elliði Vignisson bæjarstjóri fór yfir helstu stærðir í ársreikningnum og þær breytingar sem urðu á milli umræðna.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt A- og B-hluta var jákvæð um 1.463 milljónir króna, en rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1.053 milljónir króna. Heildareignir sveitarfélagsins samkvæmt efnahagsreikningi námu 11.475 milljónum króna og bókfært eigið fé í árslok 2025 var 7.485 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall sveitarfélagsins var 64,48%.

Helstu niðurstöður rekstrareininga

Afkoma einstakra rekstrareininga var eftirfarandi:

  • A-hluti sveitarfélagsins: Rekstrarafkoma ársins var 1.053,5 milljónir króna. Heildareignir námu 7.829,8 milljónum króna og eigið fé var 5.048,7 milljónir króna.
  • Félagslegar íbúðir: Rekstrarafkoma var neikvæð um 12,8 milljónir króna. Eignir námu 95,1 milljón króna og eigið fé var neikvætt um 167,5 milljónir króna.
  • Fráveita Ölfuss: Rekstrarafkoma var jákvæð um 72,6 milljónir króna. Eignir námu 538 milljónum króna og eigið fé 328 milljónum króna.
  • Hafnarsjóður Þorlákshafnar: Rekstrarafkoma var 306 milljónir króna. Eignir námu 2.565 milljónum króna og eigið fé 1.989 milljónum króna.
  • Íbúðir eldri borgara: Rekstrarafkoma var 1,3 milljónir króna. Eignir námu 457,5 milljónum króna og eigið fé 49,6 milljónir króna.
  • Vatnsveita Þorlákshafnar: Rekstrarafkoma var 42,4 milljónir króna. Eignir námu 380 milljónum króna og eigið fé 237 milljónum króna.
  • Uppgræðslusjóður Ölfuss: Sjóðurinn var lagður niður á árinu.

Samstæða sveitarfélagsins

Samstæða Ölfuss sýndi jákvæða rekstrarniðurstöðu upp á 1.463,3 milljónir króna. Heildareignir námu 11.474,7 milljónum króna og eigið fé 7.484,5 milljónum króna.

Ársreikningurinn var lagður fyrir fundinn og samþykktur samhljóða.

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir