Maður á ekki að dæma fólk út frá því sem aðrir segja eða út frá fyrstu sýn. Það leynist oft miklu meira undir yfirborðinu sem maður gæti farið á mis við ef maður gefur fólki ekki séns. Eins og sagt er: Aldrei dæma bókina af kápunni. Fólk getur verið allt öðruvísi en orðspor þess gefur til kynna og þess vegna er mikilvægt að kynnast einstaklingum sjálfur áður en maður myndar sér skoðun. Með því sýnum við bæði sanngirni og virðingu gagnvart öðru fólki.
Þetta vissi ég auðvitað en sýndi sig enn frekar þegar ég tók ákvörðun um að fara í pólitík. Áður en ég tók þá ákvörðun viðaði ég að mér mikið af upplýsingum og átti samtöl við marga. Ég vildi skilja út á hvað starfið myndi ganga og vera viss um að ég hefði það sem til þarf og eins vildi ég vera viss um að samstarfsfólkið mitt væri gott.
Það var eiginlega helst það sem stóð í mér því í langan tíma hef ég heyrt mjög illa talað um fyrrum bæjarstjóra Gunnstein R. Ómarsson og líka Ásu Berglindi, þingkonu Samfylkingar og fyrrum bæjarfulltrúa í minnihluta. Þau áttu að vera svo erfið í samstarfi og ég veit ekki hvað og hvað.
Ég ákvað hins vegar að gefa þessu fólki tækifæri og fór að mæta á fundi og fann fljótlega að þessi mynd sem var búið að mála upp af fólkinu var ekki rétt. Það hefur verið virkilega gefandi að vinna með hópnum sem hefur starfað þétt saman í því að vanda vel stefnumálin. Finna út hvað Ölfus þarf á að halda næstu fjögur árin. Við tölum um málefni og hvað þarf að bæta í stjórn sveitarfélagsins, ekki um fólk.
Í þessu ferli hef ég lært mjög mikið og finn að ég er á réttum stað. Ég tók ákvörðun um að fara í pólitík út af því að ég sé augljósa möguleika fyrir sveitarfélagið að gera betur fyrir fólkið sem hér býr. Ég vil hjálpa sveitarfélaginu að gera betur og veit að mín sýn og reynsla af því að starfa með ungu fólki í félagsmiðstöðvum og íþróttum skiptir máli.
Ég hvet ykkur til að kjósa okkur, Samfylkinguna og félaga á laugardaginn.
Setjum X við S.
Hér má heyra ræðu mína um unga fólkið frá íbúafundi og hér er grein sem ég skrifaði um sama málefni.
Pálmi Þór Ásbergsson
3. sæti á lista Samfylkingar og félaga í Ölfusi
