Brynjólfur Magnússon í framboð

Billi MaggÞorlákshafnardrengurinn Brynjólfur Magnússon hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer 10. september næstkomandi.

Brynjólfur, sem er 28 ára lögfræðingur, telur að það séu mörg tækifæri í Suðurkjördæmi sem þurfi að grípa og nýta.

Í tilkynningu, sem hann sendi frá sér fyrr í dag, kemur fram að hann vilji leggja áherslu á málefni ungs fólk og að hann muni beita sér í þágu nýsköpunar og atvinnuþróunar í kjördæminu.

Einnig vill hann leggja áherslu á að finna lausn í húsnæðismálum og að sú orka sem verður til á Suðurlandi verði fundinn farvegur innan kjördæmisins, sem sátt er um.

Fréttatilkynninguna má lesa í heild hér að neðan:

Ég, Brynjólfur Magnússon, hef ákveðið að gefa kost á mér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer þann 10. september næstkomandi.

Ég er 28 ára, lögfræðingur að mennt og er fæddur og uppalinn í Þorlákshöfn. Ég hef sinnt hinum ýmsu störfum frá unga aldri, m.a. fiskvinnslu-, þjónustu- og skrifstofustörfum. Í dag starfa ég sem sérfræðingur hjá Landsbankanum. Ég hef gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og alla tíð verið virkur í hvers kyns félagsstörfum.

Suðurkjördæmi er ríkt af náttúruauðlindum enda stærsta og víðfeðmasta kjördæmið á landinu en í því felast mýmörg tækifæri. Ég legg á það mikla áherslu að við í kjördæminu horfum til framtíðar og nýtum betur öll þau fjölmörgu tækifæri sem til staðar eru. Ber þar helst að nefna alla þá dýrmætu orku sem finna má í kjördæminu, en ég er þeirrar skoðunar og legg raunar á það áherslu að orkunni sé fundin farvegur innan kjördæmisins, sem sátt er um. Jafnframt að hún sé nýtt á sjálfbæran, hagkvæman og skynsaman hátt. Þá skapar víðfeðmi og náttúra kjördæmisins enn fremur mikil sóknarfæri í ferðaþjónustu, sjávarútvegi og landbúnaði.

Málefni ungs fólks eru mér einnig afar hugleikin en ég vil beita mér í þágu nýsköpunar og atvinnuþróunar í kjördæminu. Það segir sig sjálft að ungt og menntað fólk á erfitt með að snúa aftur heim að námi loknu ef ekki eru í boði störf við hæfi. Suðurkjördæmi hefur fjölmargt að bjóða ungum og vel menntuðum einstaklingum ef rétt er að atvinnuþróun staðið. Þá ber einnig að nefna húsnæðismálin en staðan sem blasir við á fasteignamarkaði í dag er óboðleg, einkum vegna þess hve erfitt er fyrir ungt fólk að koma undir sig fótunum, án aðstoðar foreldra. Ég tel brýnt, að farið verði strax í það verkefni, að auðvelda ungu fólki að festa kaup á sinni fyrstu fasteign. Það má til dæmis gera með því að rýmka enn frekar reglur um nýtingu lífeyrissparnaðar til íbúðarkaupa.

Í Suðurkjördæmi eru spennandi og bjartir tímar framundan. Tækifærin eru án nokkurs vafa mörg en við verðum að sjá þau, grípa og nýta! Ég hef ákveðið að bjóða fram krafta mína í þeim tilgangi. Nái ég kjöri mun ég heita því að vinna af heilindum, krafti og eldmóð í þágu alls kjördæmisins.

Horfum til framtíðar og nýtum tækifærin!

Brynjólfur Magnússon