- Vöruþróun og nýsköpun einkum í matvælaiðnaði og ferðaþjónustu
- Markaðssetning ferðaþjónustu utan háannar
- Grænmetisframleiðsla; framleiðslu- og vöruþróun, markaðssetning og sala
- Markaðssókn fyrir vörur og þjónustu á nýja markaði
- Fjármögnun verkefnastjórnunar í stærri rannsóknar- og þróunarverkefnum á Suðurlandi
- Klasar og uppbygging þeirra
- Tímabundin ráðning starfsmanna með sérþekkingu til að hagnýta möguleika fyrirtækis til vaxtar
Verkefni þar sem fyrirtæki og stofnanir vinna saman að rannsóknum, þróun og fræðslu njóta forgangs til 2/3 hlutar ofangreinds fjármagns. Umsækjendum er því bent á að leita eftir samstarfsaðilum. Ofangreindar áherslur eða samstarf fyrirtækja eru ekki skilyrði fyrir styrkveitingu.
Mótframlag verkefnis þarf að vera að lágmarki 50% en mótframlag getur verið í formi vinnuframlags. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga. Þegar áfallinn kostnaður er ekki styrkhæfur. Horft er til þess að verkefni leiði til varanlegs ábata fyrir samfélagið og séu atvinnuskapandi til lengri tíma.
Styrkveitingar til eflingar atvinnulífs og nýsköpunar eru fjármagnaðar með Vaxtarsamningi Suðurlands, Sóknaráætlun Suðurlands og með fjármunum sem áður var úthlutað af Atvinnuþfóunarfélagið Suðurlands.
Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa SASS og þiggja aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið sass@sudurland.is.