Rökkurstund á Bæjarbókasafni Ölfuss

Í tilefni af Norrænu bókmenntavikunni 2022 verður Rökkurstund á Bæjarbókasafni Ölfuss, miðvikudag 16. nóv. kl. 17.00.

Dagskrá:

  • Upplestur,
  • Tónlistaratriði sem nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga sjá um,
  • Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur les upp úr verkum sínum.

Markmiðið með Norrænu bókmenntavikunni er að breiða út bókmenntir á Norðurlöndunum og nágrannalöndum.

Þema bókmenntavikunnar að þessu sinni er norræn náttúra sem skipar stóran sess í norrænum bókmenntum.  Álabókin – sagan af dularfyllsta fiski heims eftir Patrik Svansson var valin bók ársins og lesið verður upp úr henni.

Norræna félagið í Ölfusi og Bæjarbókasafn Ölfuss