Sögupersónur afgreiða á bókasafninu

bokasafnsdagur01Bókasafnsdagurinn er haldinn hátíðlegur á bókasöfnum landsins í dag, mánudaginn 8. september og verður bókasafnið í Þorlákshöfn þar engin undantekning.

Í bókasafninu í Þorlákshöfn munu sögupersónur annast afgreiðsluna og verður gestum boðið að taka þátt í spurningaleiknum „Gettu hver ég er?“ Í tilefni lokadags bókamarkaðar verður boðið upp á ýmis ofurtilboð á bókum og tímaritum.

Þema bókasafnsdagsins að þessu sinni er „Lestur er bestur“ og hafa verið hönnuð sérstök bókamerki af tilefni dagsins sem gestir fá að sjálfsögðu með sér heim.

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir