Auglýst eftir umsóknum um styrki úr afreks– og styrktarsjóði Ölfuss

sundlaugin2Íþrótta– og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir styrki úr afreks– og styrktarsjóði sveitarfélagsins.

„Markmið sjóðsins er meðal annars að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í íþróttafélögum innan Sveitarfélagsins Ölfuss fjárhagslegan styrk til þátttöku í íþróttakeppnum erlendis. Einnig að veita afreksmönnum á sviði íþrótta viðurkenningu og stuðning til þjálfunar og þátttöku í mikilvægum keppnum.“ Þetta kemur fram á heimasíðu sveitarfélagsins.

Úthlutun styrkja fer fram í október næstkomandi og er hægt að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss. Umsóknir þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir 1. október næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson, íþrótta– og æskulýðsfulltrúi, í síma 480 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is.