Sjö umsóknir bárust um stöðu skólastjóra við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Umsóknarfrestur rann út 15. mars síðastliðinn.
Halldór Sigurðsson lætur af störfum að loknu þessu skólaári eftir 27 ára starf sem skólastjóri við Grunnskólann í Þorlákshöfn.
Eftirfarandi aðilar sóttu um starfið:
- Gerður Ólína Steinþórsdóttir
- Guðrún Jóhannsdóttir
- Jón Einar Haraldsson
- Júlía Guðjónsdóttir
- Laufey Jónsdóttir
- Lind Völundardóttir
- Róbert Grétar Gunnarsson