Davíð Halldórsson hefur verið ráðinn garðyrkjustjóri í sveitarfélaginu Ölfusi.
Davíð, sem er skrúðgarðyrkjumeistari að mennt, er enginn nýgræðingur þar sem hann hefur áður verið garðyrkjustjóri í Ölfusi.
Fjórir sóttu um starfið en Davíð þótti hæfastur og uppfyllti það sem óskað var eftir um hæfni og færni fyrir starfið.