Þórsarar unnu frábæran 90-88 baráttusigur gegn ÍR í Breiðholtinu í kvöld. Með sigrinum fóru Þórsarar í toppsæti úrvalsdeildar karla í körfubolta. Íslandsmeistararnir er nú með 22 stig, tveimur meira en Keflavík og Njarðvík sem eiga leik til góða.
Þórsarar leiddu mest allan leikinn en ÍR-ingar voru þó aldrei langt á undan. ÍR fékk gott tækifæri til að jafna metin á lokasekúndunum en fóru illa að ráði sínu í síðustu sókninni og tveggja stiga sigur Þórsara í höfn.
Glynn Watson var frábær í kvöld og skoraði 39 stig, tók 7 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Daniel Mortensen var einnig flottur með 19 stig og Ronaldas Rutkauskas bætti við 15 stigum og 9 fráköstum. Nýji leikmaður Þórs, Kyle Johnson, setti niður 9 stig og tók 5 fráköst á 15 mínútum. Luciano Massarelli setti 6 stig og Emil Karel 2.