Fjölmenni á minningarmóti

Minningarmót
Haukur og Guðmundur Karl

Það var vel mætt í dag á golfvöll Þorlákshafnar þar sem fram fór minningarmót um Gunnar Jón Guðmundsson, sem lést í bílslysi þann 1.apríl árið 2001, aðeins 16 ára að aldri.

Allur ágóðinn af mótinu rennur í minningarsjóð Gunnars Jóns, sem hefur það að markmiði að styrkja efnilega krakka í námi og íþróttum.

Veðrið lék svo sannarlega við keppendur í dag og voru kylfingar almennt léttir í lund á þessu stórskemmtilega golfmóti.

Í lok móts voru svo grillaðir hamborgarar og pylsur og verðlaunaafhending, einnig var dregið úr skorkortum þar sem fullt af flottum vinningum voru í verðlaun.

Verðlaunahafar voru eftirfarandi:

Sigurvegarar voru þeir  Guðmundur Karl Guðmundsson (Bróðir Gunnars Jóns) og Haukur Lárusson á -10 höggum eða 61 höggi nettó. 2.sæti:  Kjartan Einarsson og Kjartan Á. Valsson á -9 höggum eða 62 höggum nettó. 3.sæti:  Ingvar Jónsson og Óskar Gíslason á -9 höggum eða 62 höggum nettó.  Kjartan og Kjartan fengu annað sætið vegna þess að þeir voru með betra skor en Ingvar og Óskar á seinni 9 holunum.