Það verður líf og fjör um helgina í Þorlákshöfn í tilefni Sjómannadagsins á sunnudaginn. Björgunarsveitin Mannbjörg hefur undanfarið unnið að skipulagningu dagskrár fyrir Sjómannadagshelgina.
Dagskráin er vegleg og ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. Dagskrána má sjá hér fyrir neðan:
Laugardagur 11. júní
11-14 – Dagskrá á bryggju
- Dorgveiði
- Hoppað í sjóinn
- Mannbjörg býður börnunum í bátsferð á Draupni
- Kassaklifur
- Karfan með pylsur
12-18 – Kolaports stemmari í Ráðhúsinu
- Heimafólk með ýmislegt til sölu
- Kaffi, vöfflur með rjóma og eitthvað til að narta í
- Candyfloss (500 kr)
12-18 – Hoppukastalar í skrúðgarðinum
Sunnudagur 12. júní
11-14 – Dagskrá í sundlauginni
- Koddaslagur (allur aldur)
- Fatasundskeppni
- Reipitog (skorum á hópa af 4 manns að skrá sig, skráning fer fram á mannbjorg@gmail.com)
12-18 – Hoppukastalar í skrúðgarðinum
15-18 – Árlegt kaffihlaðborð björgunarsveitarinnar í Ráðhúsinu (2500 kr 18 ára og eldri, 1500 kr 12-17 ára og frítt fyrir 11 ára og yngri)
15-18 – Fjör í skrúðgarðinum
- Strumparnir, unglingadeild björgunarsveitarinnar sér um ratleik fyrir 10 ára og yngri.
- Candyfloss (500 kr)