Sveitarfélagið Ölfus og Íslenskar Fasteignir ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um fyrirhugaðar framkvæmdir við hótel og afþreyingarmiðstöð í Hafnarvík við Leirur í Þorlákshöfn. Skv. samkomulaginu mun Ölfus úthluta Íslenskum Fasteignum lóð fyrir uppbyggingu fyrir allt að 180 herbergja hótel og afþreyingarmiðstöð auk smáhýsa. Stefnt er að því að hótelið verði hannað og starfrækt í nánu samstarfi við nærliggjandi golfvöll samkvæmt nánara samkomulagi við Golfklúbb Þorlákshafnar.
Íslenskar Fasteignir munu annast undirbúningsrannsóknir og gerð skipulagstillagna fyrir verkefnið í nánu samráði við Sveitarfélagið Ölfus og með hliðsjón af markmiðum og ákvæðum aðalskipulags Ölfuss.
Stefnt er að því að framkvæmdir við uppbyggingu hótels geti hafist í lok næsta árs og að opnun þess geti orðið vorið 2026.
„Við eins og aðrir þekkjum þá miklu uppbyggingu sem er að eiga sér stað í Ölfusinu, og þá ekki síst Þorlákshöfn. Við höfum kynnt okkur vandlega þessi áform og höfum mikla trú á framtíð þessa svæðis. Hér eru allar forsendur til að staðsetja hótel og afþreygingarmiðstöð eins og áform okkar standa til, með golfvöllinn, Bláfjöllin og víðernið við andyrið og sjálft Atlantshafið og þessa mögnuðu fjöru í bakgarðinum. Samstarfið við Sveitarfélagið hefur verið til mikilla fyrirmynda. Kraftur þeirra og stórhugur er hreinlega smitandi og við stefnum að víðtæku samstarfi“ segir Björn Gunnlaugsson verkefnastjóri hjá Íslenskum Fasteignum.
Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi tekur í sama streng: „Það er stórt skref fyrir okkur og í raun viðurkenning að fá sterkt félag eins og Íslenskar Fasteignir til samstarfs um verkefni sem þetta. Við heimamenn vitum vel að hér eru mikil tækifæri en það er ekki sjálfgefið að fjárfestar og frumkvöðlar hafi þessa sömu sýn. Þau áform sem nú hafa verið undirrituð munu setja Þorlákshöfn á kortið í ferðaþjónustu svo um munar. Þegar það fer saman með uppbyggingu á nýjum miðbæ, stækkun hafnarinnar, fjölgun íbúa og fjölþættum umhverfisvænum áformum svo sem laxeldi á landi þá verður flestum ljóst að það er vöxtur framundan. Von okkar er því að Íslenskar Fasteignir horfi til áframhaldandi þátttöku hér.“
Nánari upplýsingar veita:
Björn Gunnlaugsson, verkefnastjóri hjá Íslenskum Fasteignum – 774 1191 og Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss – 690 1599
Hér má sjá myndband sem sýnir hvernig hótelið og afþreyingamiðstöðin mun líta út.