Ölfus Cluster hefur fengið öflugan liðsstyrk með ráðningu Evu Lindar Guðmundsdóttur sem verkefnastjóra. Eva býr yfir fjölbreyttri reynslu úr fiskeldi, gæðastjórnun og náttúruvísindum, auk þess að hafa tekið virkan þátt í nýsköpun og stefnumótun í sjávarútvegi.
Eva Lind er með háskólamenntun í líftækni og sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri og hefur starfað hjá fyrirtækjum á borð við Kaldvík og Arnarlax þar sem hún sinnti margvíslegum verkefnum á sviði gæða, umhverfisvöktunar, fiskheilbrigðis og samskiptum við eftirlitsstofnanir. Þá hefur hún einnig komið að rannsóknum á villtum laxfiskum hjá Náttúrustofu Vestfjarða og kennt náttúruvísindi og stærðfræði í grunnskóla.
Á síðustu árum hefur Eva einnig setið í stjórn Lagarlífs – ráðstefnu um nýsköpun og þróun í fiskeldi – þar sem hún hefur tekið þátt í að skipuleggja viðburði í samstarfi við fjölbreytta aðila úr atvinnulífinu. Hún hefur að auki aflað sér sérhæfðrar þekkingar á sviði öryggismála og vinnuverndar.
„Við erum mjög spennt að fá Evu Lind til liðs við okkur,“ segir Páll Marvin Jónsson, verkefnastjóri Ölfus Cluster. „Hún kemur með sterka þekkingu á þeim sviðum sem skipta okkur miklu máli – nýsköpun, sjálfbærni og samhengi atvinnulífs og náttúru.“
Eva er þekkt fyrir skipulagshæfileika, sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og leggur ríka áherslu á fagleg samskipti og jákvæð samfélagsáhrif.