Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir búseturétt til sölu á Mánabraut

Húsnæðissamvinnufélagið Elliði auglýsir til sölu búseturétt í parhúsi sem staðsett er í byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Um er að ræða Mánabraut 2 í Þorlákshöfn

Til sölu er búseturéttur í 2ja svefnherbergja íbúð í parhúsi. Í heildina er eignin 122,5 fm. og þar af bílskúr 28,6 fm. Húsið var byggt árið 2007 og er staðsett í rólegum og notalegum byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Búseturétturinn kostar 5.000.000 kr. og mánaðargjöldin eru 174.294 kr. og hækka m.v. vísitölu neysluverðs.

Bæði félagsmenn og utanfélagsmenn geta keypt búseturéttinn en aldursskilyrði eru 60 ára og eldri. Við úthlutun verður horft til þess hve lengi einstaklingar sem sækja um hafa verið í félaginu. Ef engin félagsmaður sækir um verður búseturétturinn seldur til utanfélagsmanna.

Íbúðin verður laus til afhendingar 1. janúar 2023 og skulu umsóknir berast félaginu fyrir 21.nóvember nk.

Þeir sem hafa áhuga á að kaupa búseturéttinn skulu senda inn umsóknir á Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarberg 1, 815 Þorlákshöfn eða á netfangið sandradis@olfus.is. Nánari upplýsingar veitir Sandra Dís Hafþórsdóttir sandradis@olfus.is eða í síma 480-3800.