Samfélag er ekki fyrir fram mótað. Það er ákvörðun okkar allra hvernig samfélag við veljum að búa til. Fyrir okkur snýst samfélag ekki aðeins um framkvæmdir og rekstur heldur fyrst og fremst um fólk. Að búa í samfélagi felur í sér að styðja við bakið á þeim sem mest þurfa á að halda og passa að enginn sé skilinn eftir. Þar liggur áhersla okkar sem frambjóðenda á D lista til sveitarstjórnarkosninga.
Fólkið á að vera í forgrunni
Við trúum því að það séu grundvallarréttindi hvers og eins að geta tekið þátt í samfélaginu á sínum eigin forsendum. Þjónustan á ekki að miðast við það sem hentar kerfinu best, heldur við þarfir einstaklinganna sjálfra.
Á síðustu árum hafa verið stigin mikilvæg skref í þessa átt. Með stofnun sjálfstæðs sviðs félags- og fötlunarþjónustu í Ölfusi var lagður sterkur grunnur að betri og markvissari þjónustu. Þar starfar í dag öflugur hópur fagfólks sem sinnir þessum málaflokki af alúð og fagmennsku. Það skiptir miklu máli. Á næstu dögum munum við einnig skipa í sérstakt notendaráð fatlaðra. Ráðið hefur þann tilgang að skapa öflugt samtal við fatlað fólk á öllum stigum og veita sveitarfélaginu ráðgjöf er varðar stefnumótun og áætlunargerð í málaflokknum. Við ætlum ekki að ræða um fatlaða nema með fötluðum og aðstandenum þeirra.
Börnin okkar eiga að njóta forgangs
Okkur er sérstaklega annt um hag barna í Ölfusi. Við höfum einarðan vilja til að vinna af metnaði í þeirra þágu. Börn eiga að finna að samfélagið styðji þau, hlusti á þau og skapi þeim aðstæður til að dafna.
Við þurfum að styðja betur við andlega heilsu barna og ungmenna og tryggja að börn með sérþarfir fái þá þjónustu sem þau þurfa. Það er líka mjög mikilvægt að efla lengda viðveru barna með sérþarfir og auka frístundaframboð þeirra utan starfstíma skóla. Með því styðjum við bæði börnin og fjölskyldurnar þeirra í daglegu lífi.
Næstu skref skipta máli
Sveitarfélagið okkar hefur verið vel rekið. Sterk staða samfélagsins okkar gefur okkur tækifæri til að gera enn betur í þjónustu. Núna í sumar ætlum við að endurbyggja algerlega aðstöðu Viss, vinnustað fatlaðra. Í stefnuskrá sem við kynnum betur á næstu dögum kemur skýrt fram að á komandi kjörtímabili ætlum við einnig að hefja undirbúning að nýju sérhæfðu búsetuúrræði fyrir fatlaða í Ölfusi, þróa sjálfstæða búsetu með sveigjanlegri þjónustu og tryggja fullt aðgengi að öllum stofnunum sveitarfélagsins. Þá munum við, í kjölfar stækkunar Grunnskólans, taka í notkun nýtt námsver sem mun gjörbylta aðstöðu nemenda sem eiga erfitt með að stunda sitt nám inni í bekk.
Við munum líka halda áfram að bjóða heilsueflingu fyrir öryrkja, auka framboð á tómstundum og námskeiðum, greina þarfir fólks með fötlun betur og móta skýra heildstæða stefnu.
Ölfus fyrir alla
Við trúum því af einlægni að samfélag sé sterkast þegar þar er pláss fyrir alla. Við eigum að halda áfram að byggja Ölfus upp með hlýju, metnaði og skýrri sýn um að enginn verði skilinn eftir. Þar viljum við leggja okkar af mörkum, ekki síst fyrir börnin okkar, sem eiga framtíðina skilið með öllum þeim tækifærum og stuðningi sem við getum veitt. Ef þú vilt samfélag þar sem þjónusta raunverulega mætir fólki, þá er D-listinn valkosturinn.“
Davíð Arnar Ágústsson, skipar 8. sæti á D lista.
Ingunn Guðnadóttir, skipar 9. sæti á D lista.

