Það eru stór tíðindi fyrir Þorlákshöfn að bæði Bónus og Olís hafi nú ákveðið að hefja hér veglega uppbyggingu. Fram undan er bygging nýrrar glæsilegrar dagvöruverslunar og orkustöðvar sem mun meðal annars þjóna ört vaxandi hafnarstarfsemi. Svona hlutir gerast ekki af tilviljun. Fyrirtæki af þessari stærð ráðast ekki í fjárfestingar nema þau sjái skýra framtíðarsýn, vaxandi samfélag og raunveruleg tækifæri.
Og það er nákvæmlega staðan í Ölfusi í dag.
Á örfáum árum hefur íbúum fjölgað mikið, atvinnulífið tekið stökk fram á við og hafnarstarfsemin styrkst með hverju árinu. Nú eru hundruð íbúða í byggingu og unnið að skipulagningu fleiri lóða til að skapa forsendur fyrir áframhaldandi vexti og hraðari uppbyggingu á þjónustu. Sveitarfélagið allt iðar af lífi, framkvæmdum og bjartsýni. Þá fylgir þjónustan í kjölfarið. Það hefur alltaf verið þannig.
Þegar samfélög standa í stað dregur úr þjónustu. Þegar samfélög vaxa eykst þjónusta.
Ný Bónusverslun mun skipta miklu máli fyrir heimilin í bænum. Hún eykur samkeppni, bætir þjónustu og gerir daglegt líf einfaldara og betra fyrir íbúa. Ný Olísstöð er svo annað merki um þá miklu atvinnuuppbyggingu sem átt hefur sér stað í og kringum höfnina, þar sem umsvifin aukast stöðugt.
Ágætu íbúar, þetta er ekki endastöð. Þetta er hluti af stærri breytingu. Þorlákshöfn er að taka skref úr þorpi í öflugan bæ með fjölbreytt atvinnulíf, sterka innviði og þjónustu sem fólk gerir kröfu um í nútímasamfélagi.
Við á D-listanum höfum talað skýrt fyrir vexti, uppbyggingu og bjartsýni. Við vitum að margt má betur fara og erum tilbúin til að nálgast það af ábyrgð. Núna í aðdraganda kosninga þykir okkur gott að geta útskýrt framtíðarsýn okkar en ekki síður að geta lagt verk okkar í dóm. Staðreyndirnar tala sínu máli. Fólk vill búa hér, fyrirtæki vilja fjárfesta hér og framtíðin í Ölfusi hefur sjaldan verið bjartari.
Áfram af ábyrgð, fyrir ykkur.
F.h. frambjóðenda D-listans
Grétar Ingi Erlendsson
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir
Gestur Þór Kristjánsson
Erla Sif Markúsdóttir

