Samstaða byggir hjúkrunarheimili en pólitísk deila stoppar þau

Af einhverjum ástæðum, mögulega vegna komandi kosninga, virðist gæta misskilnings hjá Samfylkingunni hvað varðar forsendu byggingar hjúkrunarheimilis í Þorlákshöfn.

Á seinustu 8 árum höfum við undirrituð ekki upplifað neitt annað en samstöðu meðal bæjarfulltrúa hvað varðar málefni hjúkrunarheimils. Á fjölmörgum fundum sem við höfum átt með þingmönnum, ráðherrum og embættisfólki höfum við fengið þau svör að ekki væri tímabært að ræða hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn og alltaf vísað í gamla samþykkt og samstöðu sunnlenskra sveitarfélaga um að slíka þjónustu eigi að byggja upp á Selfossi, miðlægt fyrir Suðurland. Ef til vill þess vegna hafa fulltrúar minnihlutans aldrei lagt það til á nokkrum fundi í 8 ár að sótt verði um að komast á langan lista framkvæmdaáætlunar ríkisins.

Á meðan bíða um 800 manns eftir hjúkrunarrými á Íslandi, þar af 150 á spítala í svokölluðum „biðrýmum“ á göngum, í geymslum og öðrum óboðlegum aðstæðum. Spár segja að fjölga þurfi hjúkrunarrýmum um 3.700 fyrir árið 2040, eða um 130%, til að mæta þörfinni. Á sama tíma eru eldri borgar í hjúkrunarþörf hér í Þorlákshöfn fluttir hreppaflutningum til að fá lífsnauðsynlega þjónustu. Það er því augljóst í huga okkar á D -listanum að ekki er hægt að sitja með hendur í skauti.

Í ljósi þessarar grafalvarlegu stöðu og í góðri samstöðu bæjarstjórnar var ákveðið að horfa til samstarfs við einkaaðila. Til að rjúfa kyrrstöðuna var auglýst eftir samstarfsaðilum um fasteignaþróun og sérstaklega tekið fram að samhliða væri horft til þess að samstarfið myndi ná til byggingar hjúkrunarheimilis við Egilsbraut. Það var gert til að tryggja eldra fólki í okkar samfélagi nauðsynlega þjónustu. Niðurstaðan varð samstarf við Íslenskar fasteignir sem hafa mikla og trausta reynslu af byggingu og rekstri hjúkrunarheimila, meðal annars við Sóltún í Reykjavík.

Íslenskar fasteignir og eftir atvikum Sóltún, hafa hlutverk framkvæmdaraðila og rekstraraðila verkefnisins. Það gera hvorki ríkið né sveitarfélagið. Félagið þróar hugmyndafræðina, hannar og byggir húsnæðið og ber alla fjárhagslega ábyrgð á því. Í framhaldi af því mun það annaðhvort sjá um daglegan rekstur hjúkrunarheimilisins eða semja við aðra aðila um það. 

Sveitarfélagið Ölfus sér um skipulagsmál og staðbundna innviði verkefnisins. Það úthlutaði lóðinni við Egilsbraut í tengslum við stærra skipulagsverkefni og vinnur nú að deiliskipulagi, samhæfir tengingar við götur og þjónustu.

Sveitarfélagið er því ekki ábyrgðaraðili þessa verkefnis og kemur ekki til með að verða rekstraraðili hjúkrunarheimilisins heldur samstarfsaðili sem skapar forsendur fyrir uppbyggingunni. Verkefnið er ekki á framkvæmdaráætlun hjá ríkinu, ekki frekar en sambærilegt verkefni í Hafnarfirði þar sem Íslenskar fasteignir eru að byggja glæsilegt nýtt hjúkrunarrými á þessum sömu forsendum.

Þar hefur pólitísk samstaða skipt sköpum og fulltrúar Samfylkingarinnar hafa þar verið til fyrirmyndar hvað slíka samstöðu varðar. Við vonum að svo muni líka verða hér enda ljóst að ekkert er líklegra til að koma í veg fyrir framgang þessa verkefnis en pólitísk deila.

Frambjóðendur D-listans í Ölfusi

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir