Það er ekki gott að hafa áhyggjur þó sumir segi að aldrei skuli láta gott áhyggjuefni fram hjá sér fara. Á dögunum birtist á þeim ágæta miðli Hamingjuhöfn góður pistill frá tilvonandi nýjum íbúa í Ölfusi og þar er margt sem flestir geta verið sammála um, að minnsta kosti ég.
Og lesendum til upplýsinga leyfi ég mér að setja hér inn hlekk á þessu ágætu grein Þóris Garðarssonar
Þórir bendir réttilega á, við erum ekki bara að velja einstaklinga í sveitarstjórnarkosningum en þeir skipta svo sannarlega líka máli. Spyrja þarf hvort einstaklingarnir í framlínu séu trúverðugir, sanngjarnir, heiðarlegir og kunni sitt fag, þetta er allt áríðandi. Og hvað varðar meðferð á almannafé erum við, ég og áðurnefndur tilvonandi nýbúi í dreifbýli Ölfus algjörlega á sömu blaðsíðu, það á að fara vel með almannafé, alltaf.
Þegar kemur stöðunni 2018 vottar aðeins fyrir mismunandi skoðun okkar í millum og vísa ég í grein Gunnsteins R. Ómarsson sem birtist á Visir.is um daginn, þar eru listaðar upp nokkrar staðreyndir sem gott er að hafa í huga. Og lesendum til upprifjunar set ég hér inn hlekk á grein Gunnsteins
En svo kemur aftur að einstökum samhljómi hjá okkur Þóri, árangur verður ekki til í tómarúmi og þeir innri þættir sem nefndir eru, skýr forysta, agi í rekstri, markviss stefna og hugrekki, allt er þetta mjög mikilvægt og til viðbótar má nefna ytri þætti svo sem eins og hrun, Covid, stríð og fleira sem hugrakkir, markvissir og agaðir stjórnendur þurfa að vinna úr.
Og við erum svo sannarlega sammála um að á síðustu árum hefur sveitarfélagið okkar tekið stór og sýnileg skref fram á við, allt frá því að teknar voru hugrakkar og framsýnar ákvarðanir um stækkun hafnarinnar og samningar við Smyril Line urðu til. Á sama tíma hófst fiskeldisævintýrið við hafið og hamingjuna og lýsislyktin var færð lengra frá þorpinu. Öll þessi vinna, sem hvað athuga skal var unnin undir handleiðslu Gunnsteins bæjarstjóra þess tíma og afar samhentri bæjarstjórn, er grundvöllur framfaranna, um þetta er ekki deilt.
En svo kemur áhyggjuefnið sem rétt er að ávarpa, það er engin freisting fyrir næstu sveitarstjórn í Ölfusi að fara að eyða og spreða og það gildir hver sem verður við völd eftir 16. maí, hér kunnum við að fara vel með, hvernig sem við erum á litinn. Við erum sammála um stærstu útgjaldaliði sveitarfélagsins, skólann þarf að stækka og það ætla allir að gera, öll langar í fjölnota íþróttahús og það ætlum við öll að byggja, um þetta er enginn ágreiningur. Þetta er ekki vinsældakeppni, þetta ábyrg uppbygging góðs samfélags og um það eru allir sammála.
Svo kemur aðalspurningin og aftur erum við sammála, spurningin er einföld eða eins greinarritari skrifar orðrétt “Viljum við halda áfram á þeirri braut sem hefur skilað mælanlegum árangri”. Og svarið er afdráttarlaust, absalut ! Við viljum til dæmis gæta vel að gulleggi sveitarfélagsins sem er höfnin og þrengja ekki að henni með því að byggja blokkir steinsnar frá athafnasvæði hennar. Þess vegna hafnar Samfylkingin fyrirhugaðri íbúabyggð við höfnina. Við erum líka afar þakklát þeim íbúum sem börðust hart við hlið okkar mikilvægu matvælaframleiðendum á móti sóðalegum malariðnaði Heildelbergs, nánast ofan í fiskeldiskerjunum. Við á lista Samfylkingar og félaga munum nefnilega sýna ábyrgð og standa með okkar fyrirtækjum og framtíðinni. Ég vil fullvissa okkar ágæta tilvonandi nýbúa að hann þurfi ekki hafa áhyggjur af því að Samfylkingin standi ekki með atvinnulífinu þegar á þarf að halda.
Kosningarnar í vor snúast nefnilega um ábyrgð, skýra framtíðarsýn og stefnufestu, ekki tækifærismennsku og ábyrgðarleysi. Það kemur nefnilega alltaf nýtt Heidelberg.
Veri allir velkomnir í Ölfus, það er svo sannarlega land tækifæranna.
Bryndís fjórða
