Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér stormviðvörum á suður- og vesturlandi í nótt.
Reikna má með meðalvindi allt að 25 m/s í kringum miðnætti og þar til í fyrramálið. Vindhviður geta náð yfir 35 m/s á þessu tímabili.
Það er því vel við hæfi að fólk hugi að lausum hlutum í görðum sínum eins og t.d. garðhúsgögnum, grillum og trampólínum.