Græni drekinn, stuðningsmannasveit Þórsara í körfubolta, er vaknaður af löngum dvala og ætlar að fjölmenna á leik FSu og Þórs á Selfossi á morgun.
Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir körfuboltann í bænum því Græni drekinn hefur sýnt mikinn lit á leikjum Þórsara og verið sjötti maður liðsins oft á tíðum.
Græni drekinn lofar brjálaðri stemningu á fimmtudaginn og hvetur alla bæjarbúa til að mæta á leikinn og taka undir með drekanum í þessum Suðurlandsslag.
Græni drekinn hefur einnig ákveðið að nútímavæðast og skrá sig á Snapchat. Áhugasemir geta bætt Græna drekanum við hjá sér á Snapchat en notendanafn þeirra er: graenirdrekar.