Samkvæmt fjárhags- og framkvæmdaáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss er áætlað að rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins verði jákvæð um 21 m.kr. árið 2016 þegar búið er að taka tillit til fjármagnsliða. Þetta kemur fram í frétt á olfus.is en fjárhags- og framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins 2016-2019 var samþykkt í gær.
Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að skuldaviðmiðið samkvæmt sveitarstjórnarlögum verði í lok árs 2016 um 97% en sveitarfélög verða að halda sig undir 150%.
Helstu áhersluliðir í áætluninni eru til kynningarmála sveitarfélagsins, viðhalds fasteigna þess svo og til umhverfismála en töluvert meiri fjármunum er varið í þessa málaflokka en verið hefur síðustu ár. Þá er gert ráð fyrir fjárfestingum innan samstæðunnar alls um 199 m.kr. til margvíslegra verkefna.
Nokkur helstu verkefnin árið 2016:
- Framkvæmdir við höfnina: 60 m.kr.
- Nýtt gámasvæði: 29 m.kr.
- Leikskólinn Bergheimar: 20 m.kr.
- Uppbygging umferðarmannvirkja: 16 m.kr.
- Uppbygging leikskóla fyrir dreifbýli Ölfuss í samvinnu við Hveragerðisbæ: 13,5 m.kr.
- Hönnun viðbyggingar við íþróttahúsið (fimleikaaðstaða): 10 m.kr.
- Loftræstikerfi í íþróttamiðstöðina: 6 m.kr.
- Fjárréttir í Ölfusi: 3 m.kr.
- Heimreiðar í Ölfusi: 2,5 m.kr.
- Fegrun innkomu í bæinn: 2 m.kr.
- Strandblakvöllur: 1 m.kr.
- Hönnun á nýjum heitum potti í sundlaugina: 1 m.kr.
Á árunum 2016-2019 er gert ráð fyrir að rekstur sveitarfélagsins verði með svipuðu sniði og á árinu 2015 og að unnið verði áfram að frekari uppbyggingu mannvirkja sveitarfélagsins svo og aukinnar og bættrar þjónustu með það að markmiði að álögur á íbúa sveitarfélagsins aukist ekki.
Helstu áhersluþættir í framkvæmdum í þriggja ára áætlun sveitarfélagsins 2017-2019:
- Stækkun hafnar: 256 m.kr.
- Fimleikaaðstaða: 180 m.kr.
- Uppbygging Bergheima: 108 m.kr.
- Önnur íþróttamannvirki: 30 m.kr.
- Vatnaveitan Berglind: 24 m.kr.
- Leikskóli í Hveragerði: 18 m.kr.
- Nýr heitur pottur í sundlaugina: 10 m.kr.
- Heimreiðar í Ölfusi: 7,5 m.kr.
- Nýtt gámasvæði 6.5 m.kr.
- Fegrun innkomu í bæinn: 5,5 m.kr.
Áætlunin hefur verið unnin með það að markmiði að bæta svo og tryggja íbúum sveitarfélagsins öfluga grunnþjónustu samhliða enn frekari uppbyggingu á ýmsum sviðum í þágu íbúa og samfélagsins í heild.
Nánari upplýsingar má nálgast hér.
Fjárhags- og framkvæmdaáætlun 2016-2019 má nálgast hér.