Nú er komið á hreint að það verður Keflavík sem mætir Þór í undanúrslitum bikarkeppninnar í körfubolta. Keflavík vann öruggan sigur á Njarðvík B í kvöld og því mæta þeir Þórsurum í Icelandic Glacial höllinni undir lok mánaðarins.
Þór og Keflavík mættust í Domino’s-deildinni síðastliðinn fimmtudag þar sem Keflavík vann 91-83.
Í hinni undanúrslitaviðureigninni eru það KR og Grindavík sem mætast í Grindavík.