Á morgun, sunnudaginn 16. janúar, kemur í ljós hver verður valinn íþróttamaður Ölfuss árið 2015. Í Ölfusi búa margir öflugir einstaklingar og frábært íþróttafólk og því ljóst að valið verður ekki auðvelt.
Búið er að tilnefna 12 einstaklinga en það eru íþróttafélögin og íþrótta- og æskulýðsnefnd sem tilnefna einstaklinga til að hljóta titilinn íþróttamaður Ölfuss.
Þeir einstaklingar sem hafa verið tilnefndir eru eftirfarandi:
- Ingvar Jónsson fyrir golf en hann er tilnefndur af Golfklúbbi Þorlákshafnar
- Arna Björk Auðunsdóttir fyrir fimleika, tilnefnd af fimleikadeild Umf. Þórs
- Þorkell Þráinsson fyrir knattspyrnu, tilnefndur af Knattspyrnufélaginu Ægi
- Monika Sjöfn Pálsdóttir fyrir hestaíþróttir, tilnefnd af Hestamannafélaginu Háfeta
- Atli Freyr Maríönnuson fyrir hestaíþróttir, tilnefndur af Hestamannafélaginu Ljúfi
- Grétar Ingi Erlendsson fyrir körfuknattleik, tilnefndur af Körfuknattleiksdeild Umf. Þórs
- Styrmir Dan Steinunnarson fyrir frjálsar, tilnefndur af Frjálsíþróttadeild Umf. Þórs
- Berglind Dan Róbertsdóttir fyrir Badminton, tilnefnd af Badmintondeild Umf. Þórs
- Gyða Dögg Hreiðarsdóttir fyrir akstursíþróttir, tilnefnd af Akstursíþróttadeild Umf. Þórs
- Eva Lind Elíasdóttir fyrir knattspyrnu og frjálsar íþróttir, tilnefnd af Íþrótta- og æskulýðsnefnd
- Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir fyrir fimleika, tilnefnd af Íþrótta- og æskulýðsnefnd
- Guðmundur Karl Guðmundsson fyrir knattspyrnu, tilnefndur af Íþrótta- og æskulýðsnefnd
Til viðbótar við að veita íþróttamanni Ölfuss verðlaun mun Íþrótta- og æskulýðsnefnd veita ýmsar aðrar viðurkenningar til íþróttamanna sem staðið hafa sig vel á árinu.