Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu Ölfusi. Hægt er að sækja um öll störfin frá og með 15.03.2016.
Umsóknareyðublöð eru á bæjarskrifstofum eða með því að smella hér.
Sendið umsókn á david@olfus.is eða skilið inn umsókn á bæjarskrifstofur Ölfus. Umsóknarfrestur er til og með 22.04.2016.
Störf hjá vinnuskólanum:
Yfirflokkstjóri vinnuskólans
- Yfirumsjón með flokkstjórum og vinnuhópum vinnuskólans ásamt umhverfisstjóra
- Almenn garðyrkjustörf o.fl. tengt vinnuskólanum (almenn garðyrkjustörf og umhirðu á opnum svæðum tengd vinnuskólanum)
- Frumkvæði og góð mannleg samskipti
- Bílpróf skilyrði
- Krafist er stundvísi, ástundunar, dugnaðar
- Lágmarksaldur 22 ára
Flokkstjórar vinnuskólans
- Umsjón með vinnuhóp í vinnuskólanum
- Almenn garðyrkjustörf o.fl. tengt vinnuskólanum (almenn garðyrkjustörf og umhirðu á opnum svæðum tengd vinnuskólanum)
- Frumkvæði og góð mannleg samskipti
- Krafist er stundvísi, ástundunar, dugnaðar
- Lágmarksaldur 20 ára.
Störf hjá umhverfisdeild og þjónustumiðstöð:
Verkstjóri yfir sláttudeild
- Umsjón með starfsmönnum sláttuhóps
- Skipulagning- og ábyrgð á garðslætti og hirðingu á opnum svæðum í samráði við umhverfisstjóra
- Viðkomandi þarf að hafa bílpróf
- Reynsla af viðhaldi véla og vinnuvélaréttindi æskileg
- Krafist er stundvísi, ástundunar, dugnaðar
- Lágmarksaldur 22 ára.
Sumarstarfsfólk í sláttudeild og þjónustumiðstöð
- Vinna við við almenn garðyrkjustörf, garðslátt og hirðingu á opnum svæðum ásamt ýmsum verkefnum Þjónustumiðstöðvar
- Krafist er stundvísi, ástundunar og dugnaðar
- Frumkvæði og góð mannleg samskipti
- Bílpróf og vinnuvélaréttindi kostur
- Lágmarksaldur 16 ára.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Halldórsson umhverfisstjóri í síma 899 0011 eða david@olfus.is.