Nýafstaðið skólaár gert upp

Útskriftarhópur 2013
Útskriftarhópur 2013

Það var þétt setið í íþróttahúsinu er grunnskólanum var slitið með glæsilegri athöfn fyrr í kvöld.

Skólastjóri Grunnskóla Þorlákshafnar, Halldór Sigurðsson, fór fyrir athöfninni. Skólaárið var rifjað upp og margir einstaklingar heiðraðir fyrir ólík störf  í vetur.

Aðalmál kvöldsins var svo útskrift 10.bekkjar. Formaður nemendaráðs, Jenný Karen Aðalsteinsdóttir, fór með skemmtilega ræðu um skólagöngu útskriftarhópsins. Gefin voru verðlaun fyrir einstakar námsgreinar. Athöfninni lauk síðan á því að nemendur 1.bekkjar gáfu útskriftarhópnum rós í hnappagatið.

Til hamingju með daginn 10.bekkur og gleðilegt sumar nemendur og kennarar.