Leikfélag Ölfus hefur hafið æfingar á nýju verki

leikfelag_olfus01Leikfélag Ölfuss hefur hafið æfingar á gamanleiknum Makalaus sambúð eftir Neil Simon. Leikgerðin er byggð á kvikmyndinni The Odd Couple sem skartaði þeim Jack Lemon og Walter Matthau í aðalhlutverkum. En ólíkt kvikmyndinni eru konur í aðalhlutverkum í þessari leikgerð. Leikstjóri er eyjapeyjinn Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson sem meðal annars hefur numið og leikið í Hollywood ásamt því að leikstýra hjá Leikfélagi Vestamannaeyja og Leikfélagi Keflavíkur svo dæmi séu tekin.

Það er ekki sjálfgefið að leikfélög í eins litlu samfélagi og Þorlákshöfn geti sett upp leiksýningu í fullri lengd á hverju ári. Á síðustu árum hafa ríkisstyrkir til áhugaleikfélaga í landinu farið lækkandi, sem gerir okkur enn erfiðara fyrir að halda starfsemi gangandi. Það er því algjörlega ómetanlegt hvað fyrirtæki í Þorlákshöfn hafa stutt vel við bakið á okkur í formi styrkja og eru okkar stærsti stuðningsaðili, þá hafa íbúar verið duglegir að sækja sýningar og aðstoða okkur á allan mögulegan hátt. Við þökkum fyrir það og hlökkum til að sjá ykkur á sýningum í vetur. Fylgist með okkur á www.facebook.com/leikfelag.olfuss

F.h. Leikfélags Ölfuss
Þrúður Sigurðar