Makalaus sambúð hjá Leikfélagi Ölfuss

makalaus_sambud01Þann 18. október n.k. frumsýnir Leikfélag Ölfuss leikritið Makalaus sambúð eftir Neil Simon í þýðingu Ásgeirs Sigurvaldasonar. Margir kannast eflaust við bíómyndina The odd couple frá árinu 1968 sem skartaði leikurunum Walter Matthau og Jack Lemon en sú kvikmynd er upphaflega byggð á þessu leikverki.

Leikritið fjallar á kómískan hátt um vinkonur í spilaklúbbi, gleði þeirra og raunir. Það gengur á ýmsu, ekki hvað síst þegar ofurhúsmóðirin Elísabet flytur inn til Margrétar sem er ekki alveg jafn skipulögð. Þá eru spænsku bræðurnir Manolo og Jesus ekki til að bæta samskipti milli vinkvennanna. Drepfyndið verk sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara.

Leikritið sem er í fullri lengd, verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson.

Leikarar eru Ásta Margrét Grétarsdóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Ingólfur Arnarson, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir, Þuríður Sigurrós Sigurðardóttir og Þrúður Sigurðar.