Styrmir Dan íþróttamaður Ölfuss 2013

styrmir_ithrottamadurolfuss2013Í dag fór fram kjör á íþróttamanni Ölfuss fyrir árið 2013 í Versölum. Samankomnir voru þeir íþróttamenn sem skarað höfðu fram úr í sinni grein á árinu og voru tilnefndir í valinu um íþróttamann Ölfuss.

Styrmir Dan Steinunnarson, frjálsíþróttamaður í Þór, hlaut titillinn að þessu sinni en hann hefur staðið sig frábærlega á þessu ári. Styrmir vann fjölda íslands- og bikarmeistaratitla en hápunktur hans á árinu er íslandsmet unglinga í hástökki þar sem hann stökk 1.90 m. og bætti þar með 28 ára gamalt íslandsmet. Hér fylgir umsögnin um Styrmi Dan.

Styrmir Dan er einn efnilegasti frjálsíþróttamaður á Íslandi. Hann hefur náð frábærum árangri á árinu. vann sjö íslandsmeistaratitla á árinu og einn bikarmeistaratitil. Einnig setti hann 2 íslandsmet í þrístökki og hástökki. Íslansmetið í hástökki var 1.90m og telst  það eitt af stóru afrekunum á árinu í frjálsum íþróttum. Hann hefur æft mjög vel og  tekið miklum framförum. Hann býr yfir þeim hæfileikum að vera fljótur að ná tækni  sem skilar sér í meiri hraðari framförum. Hann hefur skýr markmið, veit hvað hann vill og hvert hann stefnir.

Eftirtaldir íþróttamenn voru í kjöri til íþróttamanns Ölfuss 2013

  • Akstursíþróttamaður Þórs: Þorsteinn Helgi Sigurðarson
  • Badmintonmaður Þórs: Axel Örn Sæmundsson
  • Fimleikamaður Þórs: Kolbrún Olga Reynisdóttir
  • Frjálsíþróttamaður Þórs: Styrmir Dan Steinunnarson
  • Hestaíþróttamaður Háfeta: Katrín Stefánsdóttir
  • Hestaíþróttamaður Ljúfs: Arnar Sigurðsson
  • Knattspyrnumaður Ægis: Arnar Logi Sveinsson
  • Kylfingur GÞ: Ingvar Jónsson
  • Körfuknattleiksmaður Þórs: Þorsteinn Már Ragnarsson

Hér má sjá myndir frá Jóhönnu Margréti af íþróttamönnunum frá því í dag. Mynd vantar af Ingvari Jónssyni en hann var fjarverandi.

[nggallery id=17]