Fín veðurspá fyrir brennuna og kvöldið

Brennan í dag. Kveikt verður í klukkan 17.
Brennan fyrr í dag. Kveikt verður í klukkan 17.

Áramótin nálgast óðfluga hér í Þorlákshöfn sem og annars staðar. Brennan verður á sínum stað fyrir ofan Skötubótina og hefst hún klukkan 17.  Flugeldasýningin hefst síðan klukkan 17:30.

Samkvæmt veðurspám þá ætti kvöldið að vera nokkuð gott. Engin úrkoma er í kortunum í Þorlákshöfn. Um tveggja gráðu hiti með smá vind sem gæti farið í tíu metra á sekúndu.

Hafnarfréttir óska Þorlákshafnarbúum sem og öðrum gleðilegs nýs árs.