Sigurður Eyberg í raðir Ægis

Mynd: Guðmundur Karl / Sunnlenska.is
Mynd: Guðmundur Karl / Sunnlenska.is

Knattspyrnufélagið Ægir er enn að styrkja lið sitt fyrir átökin í 2. deildinni í sumar. Liðið fékk í vikunni varnarmanninn Sigurð Eyberg Guðlaugsson til liðs við sig en hann er uppalinn Selfyssingur.

Sigurður, sem er 23 ára, var á láni hjá Hamri síðari hluta síðasta tímabils og skoraði þar tvö mörk í sjö leikjum í 2. deildinni.

Einnig hafa Ægismenn fengið til sín sóknarmanninn Aron Inga Davíðsson. Hann kemur frá Fjölni þar sem hann kom upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.