Íbúafundur í Ráðhúsinu vegna lagningar ljósleiðara í Þorlákshöfn

radhus01Á þessu ári mun Gagnaveita Reykjavíkur, í samstarfi við Sveitarfélagið Ölfus, leggja ljósleiðarakerfi sitt til þeirra heimila í Þorlákshöfn sem þess óska.

Á almennum íbúafundi, sem haldinn verður í Versölum, ráðhúsi Ölfuss þriðjudaginn 8. apríl kl. 20:00 til 21:00 munu fulltrúar Gagnaveitunnar kynna verkefnið, fyrirhugðar framkvæmdir og þá kosti sem íbúum býðst með fjarskiptaþjónustu um Ljósleiðarann.

Íbúar eru hvattir til að mæta og kynna sér þá þjónustu sem boðið er upp á.