Garðlönd í boði í sumar

kartoflur01Í sumar verða starfrækt garðlönd á sama stað og í fyrra, sunnan við Finnsbúð / norðan við íþróttavellina. Þar er aðgengi að vatni gott svo auðvelt er að vökva.

Hver reitur verður um 25m2 og verður þeir tilbúnir til niðursetningar 15. maí. Umsóknarfrestur er til og með 7. maí. Nú er um að gera að fá sér garð og rækta sitt eigið grænmeti og kartöflur.

Þeir sem hafa áhuga á að fá sér garð hafi samband við Elínu í þjónustumiðstöð í síma 899-3695 eða á netfangið elin@olfus.is