Fyrsti áfangi hafnarframkvæmda að hefjast í Þorlákshöfn

hafnardypkun01Á fimmtudaginn var samningur um fyrsta áfanga hafnarframkvæmda í Þorlákshöfn undirritaður. Í þessum áfanga verður um 80.000 rúmmetrar af efni fjarlægt úr höfninni en það er Björgun sem sér um framkvæmdina.

Unnið hefur verið að því síðasta árið að fá fjármögnun í löngu tímabært viðhald hafnarinnar auk dýpkunar og endurbóta sem mæta kröfum vegna stærri skipa og eftirspurnar um fjölbreyttari nýtingu hafnarinnar síðustu árin. Kostnaðurinn við framkvæmdina eru rúmar 120 milljónir króna.

Samningurinn var undirritaður af Jóhanni Þ. Sigurðssyni fyrir hönd Vegagerðarinnar, Jóhanni Garðari Jóhannssyni fyrir hönd Björgunar, Hirti Jónssyni, hafnarstjóra og Sveini Steinarssyni fyrir hönd bæjarstjórnar Ölfuss. Framkvæmdir munu hefjast eftir Verslunarmannahelgi.