Félagsmiðstöðvardagurinn er í dag

photo 2Í dag, miðvikudaginn, 4. nóvember, standa Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi eða Samfés fyrir félagsmiðstöðvardeginum.

Félagsmiðstöðvar víða um land verða opnar fyrir gesti og gangandi og að sjálfsögðu er Félagsmiðstöðin Svítan engin undantekning. Markmið félagsmiðstöðvadagsins er að gefa áhugasömum færi á að heimsækja félagsmiðstöðina í sínu nágrenni, kynnast því sem þar fer fram, unglingunum og þeim viðfangsefnum sem þeir fást við með stuðningi starfsfólks félagsmiðstöðvanna.

Allir eru velkomnir, sérstaklega foreldrar og „gamlir“ unglingar sem vilja rifja upp kynnin við gömlu félagsmiðstöðina.

Vilja ungmenni í félagsmiðstöðinni Svítunni því bjóða öllum bæjarbúum að mæta í félagsmiðstöðina í kvöld kl. 19:30-22:00. Þar býðst fólki tækifæri á að skoða félagsmiðstöðina og taka þátt í borðtennis og fuzzballmóti sem unglingaráð Svítunnar mun standa fyrir.