Kvenfélagsfundur 5. nóvember

kiwanis01Á morgun, fimmtudaginn 5. nóvember, verður Kvenfélagsfundur í Kiwanishúsinu og hefst hann kl. 20:00. Góður gestur kemur á fundinn en það er hún Kristín Lind Jónsdóttir ritstjóri og sálfræðingur. Mun hún fræða gesti um:

  • Listina að lifa
  • Stöðumat, skipulag, stefnuskrá, samskipti og starfsgleði
  • Hamingju í einkalífi og kvenfélagsstarfi

Kristín Lind mun byrja kl. 20:00 og er hennar dagskrá í um klukkustund. Eftir það verður tekið kaffihlé og að því loknu verður stuttur hefðbundinn fund.

Konur sem vilja kynna sér starf kvenfélagsins eru að sjálfsögðu velkomnar.

Kveðja Stjórnin