Viðvörun: Veðurstofan spáir fárviðri

vedur01Veðurstofa Íslands spáir fárviðri um allt land seinni partinn og annað kvöld á morgun. Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að langt suður í hafi sé lægð í myndun. Hún dýpkar með eindæmum hratt í nótt og er þrýstingi í miðju hennar spáð 944 mb seint annað kvöld og á hún þá að vera stödd suður af Reykjanesi.

Á þeirri stundu verður 1020 mb hæðarhryggur skammt norður af Scoresbysundi á austurströnd Grænlands og heldur hann á móti lægðinni. Saman valda þessi tvö veðrakerfi vindstyrk af styrk ofsaveðurs eða fárviðris yfir Íslandi.

Spá fyrir landið mánudaginn 7. desember

Hvessir á morgun og dregur úr frosti, fyrst sunnantil. Austan 20-25 og snjókoma sunnanlands eftir hádegi. Víða ofsaveður eða fárviðri á landinu um kvöldið, 25-35 m/s með slyddu eða snjókomu. Hiti um frostmark annað kvöld, en 0 til 5 stig sunnan heiða.

Spáð er ofsaveðri eða fárviðri á landinu síðdegis á morgun og annað kvöld, fyrst sunnanlands.

Fárviðrið skellur á sunnanvert landið eftir kl. 15 á morgun. Eftir kl. 19 má búast við ofsaveðri eða fárviðri um allt land. Með fylgir úrkoma og verður hún á formi snjókomu og því má búast við glórulausum byl. Búast má við miklu úrkomumagni um landið austanvert. Seint annað kvöld er útlit fyrir að það hlýni nægilega sunnantil á landinu til að úrkoma verði á formi slyddu eða rigningar.

Til að setja væntanlegt veður í samhengi skal bent á að spáin fyrir morgundaginn hljóðar uppá miklu verra veður en voru núna í nýliðinni viku (þriðjudag, föstudag, laugardag).

Ofsaveður er 11 vindstig (gamli skalinn, Beaufort) og er þá meðalvindhraði meiri en 28 m/s. Fárviðri er 12 vindstig og er þá meðalvindhraði meiri en 32 m/s. Sjá fróðleiksgreinina Nöfn vindstiga og greining veðurhæðar.