Tilkynning frá umhverfisstjóra

jolatrehirdaSöfnun jólatrjáa í Þorlákshöfn
Dagana 11. og 12. janúar munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvar annast hirðingu jólatrjáa í bænum. Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlega beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðarmörk fyrir þann tíma og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið og valdið tjóni.

Einnig geta íbúar losað sig við jólatrén á gámasvæði Sveitarfélagsins Ölfuss á opnunartíma.

Flugeldar – Hreinsun og förgun
Mikið rusl fellur til um áramót þegar tonnum af flugeldum er skotið á loft. Við hvetjum íbúa til að sýna gott fordæmi og hreinsa upp eftir sig og koma í förgun á gámasvæði Sveitarfélagsins. Ef sem flestir gefa sér tíma í það á nýja árinu að fegra nærumhverfi sitt og aðstoða þá komum við bænum í gott horf fljótt og örugglega að áramótunum liðnum.

Gámasvæði við Hafnarskeið
Minnum á breyttan opnunartíma:
Mánudaga – föstudaga frá kl. 15:00 – 18:00
Laugardaga frá kl. 13:00 – 16:00
Sími: 483-3817

Sorp- og endurvinnsluflokkar á gámasvæðinu eru: Blöð, tímarit, sléttur pappi, skrifstofupappír, bylgjupappír, raftæki smá, raftæki stór, tölvur, tölvuskjáir, flatskjáir, ljósaperur, kælitæki, föt og klæði, garðaúrgangur, hjólbarðar, rafhlöður, spilliefni, steinefni (gler, postulín, flísar, múrbrot og fl.), málmar, ómálað timbur, málað timbur og grófur úrgangur s.s. dýnur, sófar, gólfteppi og fl. sem erfitt er að pressa.

Vinsamlega gangið vel um og losið ekki úrgang af neinu tagi utan gámasvæðis.

Davíð Halldórsson
umhverfisstjóri