Erlendur á leiðinni heim

erlenduragust02Erlendur Ágúst Stefánsson er á leiðinni heim í Þór eftir dvöl í Bandaríkjunum þar sem hann spilaði körfubolta með Black Hills State University í Suður-Dakóta. Einar Árni Jóhannsson þjálfari liðsins staðfesti þetta í viðtali við Karfan.is í dag.

„Það er mikil ánægja með það að fá Erlend Ágúst aftur heim. Hann var í tvö ár á Selfossi og svo í Bandaríkjunum í vetur og kemur reynslunni ríkari til baka. Hann er náttúrulega alinn upp í Þór og lokar skemmtilegri línu þar sem við erum með uppalda stráka frá árgang ´93 til ´98 sem eru þegar farnir að láta kveða að sér í meistaraflokki (vantaði hann úr ´95 árg) og það er ansi gott í ekki stærra samfélagi. Erlendur er öflugur íþróttamaður og getur leyst báðar bakvarðarstöðurnar þannig að hann eflir hópinn klárlega,“ sagði Einar Árni í samtali við Karfan.is.