Aðalfundur Elliða – breyttur fundarstaður

manabraut01Aðalfundur Elliða hsf. verður haldinn fimmtudaginn 9. júní n.k. á bókasafninu, kl. 19.30 og er hann opinn öllum félagsmönnum.

Dagskrá fundar:
1. Setning aðalfundarins
2. Kosning fundarstjóra og ritara
3. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar til afgreiðslu ásamt fjárhagsáætlun
5. Ráðstöfun hagnaðar eða taps á reikningsárinu
6. Ákvörðun um inntökugjald, félagsgjald, búsetugjald og gjald í viðhaldssjóð
7. Tillögur til breytingar á samþykktum félagsins
8. Kosning formanns til eins árs
9. Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára
10. Kosning þriggja varamanna í stjórn til tveggja ára
11. Kosning löggilts endurskoðanda til tveggja ára
12. Tekin ákvörðun um þóknun stjórnarmanna
13. Kosninga þriggja manna í viðhaldsráð til eins árs
14. Önnur mál