Eldur kom upp í bíl í Núpagryfjum í Ölfusi

elduribil
Mynd: Brunavarnir Árnessýslu

Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu frá Hveragerði voru kallaðir út á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna elds í bifreið við Núpagryfjur í Ölfusi.

Um var að ræða númerslausa bifreið sem ungir ökumenn voru að aka í gryfjunum þegar að eldurinn kom upp. Ekki urðu slys á fólki við atvikið.

Slökkviliðsmenn slökktu eldinn hratt og örugglega eftir að þeir komu á vettvang en bifreiðin er gjörónýt.