Auglýst eftir umsóknum í Afreks – og styrktarsjóð Ölfuss

Mynd: Baldvin Agnar Hrafnsson

Íþrótta – og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir styrki úr Afreks – og styrktarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss.

Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í íþróttafélögum innan Sveitarfélagsins Ölfuss fjárhagslegan styrk til þátttöku í íþróttakeppnum erlendis. Einnig að veita afreksmönnum á sviði íþrótta viðurkenningu og stuðning til þjálfunar og þátttöku í mikilvægum keppnum.

Úthlutun styrkja fer fram í október nk. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. október næstkomandi, merkt: AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS – UMSÓKN.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta – og æskulýðsfulltrúi, í sima 480 – 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is.

Sveitarfélagið Ölfus
Íþrótta – og æskulýðsnefnd