Ölfus kaupir rafbíl: „Hluti af umhverfisstefnu sveitarfélagins“

Sveitarfélagið Ölfuss festi kaup á sínum fyrsta rafbíl á dögunum sem notaður verður við heimaþjónustu fyrir aldraða í sveitarfélaginu.

Bifreiðin er af gerðinni Kia Soul og er drægni hennar á 200 km. á fullri hleðslu.

„Er þetta hluti af umhverfisstefnu sveitarfélagins að nýta umhverfisvænni kosti eins og mögulegt er í rekstri sínum,“ segir á heimasíðu Ölfuss.

Sjá einnig: Hleðslustöð fyrir rafbíla við íþróttamiðstöðina

„Ekki er vafi á því að þessi nýja bifreið mun nýtast vel í framtíðinni í þjónustu við elstu íbúa sveitarfélagsins og fer vel á því að fyrsta skrefið í rafbílvæðingu þess sé nýtt í þeirra þágu,“ segir ennfremur.

Á myndinni er Sigrún Theódórsdóttir forstöðumaður heimaþjónustu ásamt nýja rafbílnum.