Þórsarar semja við reynslumikinn Bandaríkjamann

Körfuknattleikslið Þórs hefur gert samning við Bandaríkjamanninn Jesse Pellot-Rosa um að leika með liðinu í Domino’s deildinni á næstu leiktíð.

Jesse Pellot-Rosa er 33 ára gamall og hefur verið atvinnumaður í 10 ár. „Hann er 193 cm fjölhæfur bakvörður sem getur einnig leyst stöðu framherja,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu Þórsara.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Pellot-Rosa leikur á Íslandi en hann hóf sinn atvinnumannaferil hér á landi árið 2008. „Hann kom til liðs við Keflavík haustið 2008 sem var hans fyrsta starf í Evrópu, en var í hópi fjölmargra erlendra leikmanna sem héldu heim á leið vegna fjármálakreppunnar þá um haustið. Hann lék þann vetur með SISU í Danmörku en kom svo til liðs við Keflavík aftur í úrslitakeppninni hvar þeir léku gegn Njarðvík og KR. Pellot-Rosa var með 34,8 stig, 9,6 fráköst, 4,2 stoðsendingar og 2,2 stolna bolta á leik í þeim fimm leikjum er hann lék með Keflavík og frægasti leikurinn er þríframlengdur leikur gegn KR í DHL höllinni í þriðja leik liðanna í undanúrslitaseríunni.“

Jesse Pellot-Rosa hefur komið víða við og má þar nefna efstu deild í Ísrael, efstu deild í Argentínu, Mexíkó og Puerto Rico svo eitthvað sé nefnt.

„Það er fagnaðarefni fyrir ungt Þórslið að fá þennan reynslumikla leikmann til liðs við félagið,“ segir að lokum í tilkynningu Þórsara.