Fyrr í dag var fyrsta skóflustungan tekin að nýrri verksmiðju Lýsis vestan við Þorlákshöfn og mun hún hýsa fiskþurrkunarstarfsemi fyrirtækisins.
Í dag er starfsemin staðsett í tveimur byggingum á iðnaðarsvæðinu í Þorlákshöfn en með þessari framkvæmd verður öll framleiðslan í sama húsnæðinu.
Framkvæmdir munu hefjast eftir helgi en um er að ræða 2.500 fm. húsnæði á lóð sem er um þrjá kílómetra vestan við Þorlákshöfn. Verksmiðjan verður útbúin nýjustu tækni og stefnt er að því að verksmiðjan verði tilbúin til framleiðslu í júlí 2018.
Við hjá Hafnarfréttum viljum óska Lýsi og íbúum Þorlákshafnar til hamingju með þetta frábæra verkefni.