Snorri Hrafnkelsson genginn til liðs við Þór

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við Snorra Hrafnkelsson um að ganga til liðs við félagið. Snorri er 23 ára gamall og 199 cm miðherji sem kemur frá KR þar sem hann hefur leikið síðustu tvö ár en hann er alinn upp í Breiðablik.

Snorri skoraði 5,7 stig og tók 2,9 fráköst á 17 mínútum í deildarkeppninni með KR en lék minna í úrslitakeppninni og missti m.a. af nokkrum leikjum vegna meiðsla.

„Það ríkir mikil ánægja með komu Snorra í Þórsliðið en hann er öflugur miðherji sem hefur þónokkra reynslu orðið þrátt fyrir ungan aldur. Snorri þekkir einnig ágætlega til innan herbúða Þórs en hann hefur leikið undir stjórn Einars Árna þjálfara hjá bæði Breiðablik og Njarðvík sem og í yngri landsliðunum og var samherji Þorsteins Más í Breiðablik og í yngri landsliðum, Emils Karels í yngri landsliðum og Ólafs Helga í Njarðvík.“ Segir í tilkynningu Þórsara.